Hornkerlingar

Feminískur hlaðvarpsþáttur þar sem tveir miðaldra femínistar reyna að skilja hvað er í gangi í feðraveldinu og vera gáfulegar á meðan. Ps. var búið að nefna að þemað er feminískt?
Tónlist: Emil Svavarsson
Hlaðvarpið er í boði Kvenréttindafélags Íslands og tekið upp hjá Blabla stúdíó

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Tuesday Mar 31, 2026

Konum er mismunað í vísindum eins og annarsstaðar. 

Tuesday Mar 17, 2026

Alþingismanni einum þótti nóg um þátt okkar um hjónabandið og réðist á Kvenréttindafélagið í færslu á samfélagsmiðlum. Ekki stóð á viðbrögðum fylgjenda hans og í langri runu kommenta er Hornkerlingum, Kvenréttindafélaginu og femínistum fundið allt til foráttu. Í þessum þætti orðræðugreinum við athugasemdir fylgismanna alþingismannsins, svörum rangfærslum hans og fylgismanna hans og ræðum um ábyrgð valdamikils fólks gagnvart almennum borgurum.
Þessi þáttur Á að vera langur. 

Tuesday Mar 17, 2026

Hverjir eru það sem mega vera reiðir? Mega konur vera reiðar eða eru þær þá að standa of mikið með sjálfum sér? Við velstum líka fyrir okkur mannorðsmorðum, orðspori og hvernig mannorð þarf að vera til þess að hægt sé að myrða það. 

Tuesday Mar 17, 2026

Hin tiltölulega unga stofnun hjónabandið er skoðuð í þessum þætti þar sem við ræðum einkvæni í dýraríkinu, hlutverk hjónabandsins í gangverki feðraveldisins, skilnaði og topp 3 kosti og galla við hjónabandið í nútímasamfélagi.

Tuesday Feb 24, 2026

Hlaðvarpsheimurinn á Íslandi virðist elska að hata femínista og þáttastjórnendur fá ekki nóg af því að bjóða til sín fólki sem talar illa um femínista og/eða hefur snúið baki við femínisma. Við förum vel yfir þessi mál ásamt því að deila sögum úr æsku okkar. 

Wednesday Feb 18, 2026

Í þessum þætti ræðum við um vistfemínisma og tengsl náttúruverndar og kvenréttinda. Við ræðum grænkerafæði, áhrif nautahakks á heilastærð, um stigveldi, Dow Jones og að lokum um það að skipta sjálfbærnihugtakinu út fyrir vistfemíníska nálgun. 

Áföll

Friday Feb 13, 2026

Friday Feb 13, 2026

Við skoðum áfallamiðun, váviðvaranir, áfallastreituröskun og meðferðir við henni. Svo komum við inn á lestur drengja, kenningar Freud um áfföll og annað skemmtilegt.

Bandamenn

Friday Feb 13, 2026

Friday Feb 13, 2026

Strákarnir okkar, bandamenn femínista koma í öllum formum en jafnrétti næst ekki nema að karlar taki virkan þátt í baráttunni. Við förum yfir nokkra góða bandamenn af samfélagsmiðlum.
 

Snjókorn

Friday Feb 13, 2026

Friday Feb 13, 2026

Snjókorn er notað í niðrandi merkingu um viðkvæmt fólk en við ræðum um hvort það sé ekki bara merki um þroska að geta sýnt tilfinningaleg viðbrögð við erfiðum aðstæðum. Kvíði og þunglyndi eru þá líka skiljanleg eins og ástandið í heiminum er í dag. 

Perrameðvirkni

Tuesday Jan 20, 2026

Tuesday Jan 20, 2026

Samfélög eru og hafa alltaf verið meðvirk með gerendum kynbundins ofbeldis. Hornkerlingar ræða Metoo, gerendameðvirkni, hverjir það eru sem raunverulega er kanselað, nóbelsverðlaunin og tilkynna um nýjan Instagramreikning. Hornkerlingar eru komnar á insta og eru með tölvupóstfang sem við hvetjum hlustendur til að senda okkur ábendingar og óskir um umfjöllunarefni. Tölvupóstfangið er hornkerlingar (hjá) gmail.com. Hlökkum til að heyra frá ykkur!

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125